HomeNeðri deildir1. deild kvennaBlikar bæta í þjálfarateymið

Blikar bæta í þjálfarateymið

Breiðablik hefur ráðið Anítu Rún Árnadóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi verkefni. Aníta er uppalin hjá félaginu og sannur Kópavogsbúi sem þekkir gildi Blika út og inn, en henni er ætlað að vera mikilvægur hlekkur í uppbyggingu liðsins á nýju tímabili.

Í tilkynningu frá deildinni kemur fram að mikil ánægja sé með ráðninguna og að reynsla hennar, ástríða fyrir körfuboltanum og sterk tengsl við félagið muni nýtast meistaraflokki kvenna afar vel í þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru.

Fréttir
- Auglýsing -