HomeFréttirBlake Griffin troðslumeistari á stjörnuhelgi NBA

Blake Griffin troðslumeistari á stjörnuhelgi NBA

 
Stjörnuhelgin stendur nú sem hæst í Los Angeles í Bandaríkjunum og þegar hefur dregið nokkuð til tíðinda en nýliðinn Blake Griffin hafði sigur í troðslukeppninni. Það sem gerði útslagið var þegar kappinn vippaði sér yfir bifreið en úr henni gaf Baron Davis, liðsfélagi Griffin í LA Clippers, stoðsendingu á kappann sem skilaði boltanum í netið.
Það voru Blake Griffin og JaVale McGee sem börðust um titilinn og þegar kom að úrslitum hafði Griffin betur í atkvæðum aðdáenda en hann hlaut 68% þeirra atkvæða.
 
 
Sjálfur Stjörnuleikurinn fer svo fram í nótt og verður hann í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport laust eftir kl. 01:00 í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -