KR hefur gert tveggja ára samning við þjálfara úr Keflavík, Björn Einarson, þess efnis að þjálfa kvennalið þeirra, en liðinu hefur gengið sama sem ekkert síðan þær unnu titilinn stóra síðast árið 2010. Reyndar svo illa að á síðasta tímabili var liðið nær því að falla úr deild þeirra bestu en að ná sér í miða til úrslitakeppninnar. Miklar væntingar bundnar við Björn í Vesturbænum fyrir næsta tímabil, kannski ekki að ástæðulausu, hann er úr Keflavík
Björn hefur undanfarin 5 ár þó ekki verið í meistaraflokksþjálfun, heldur einbeitt sér að yngri flokkum Keflavíkur, með afburðar árangri. Fyrir það, og þrátt fyrir enn ungan aldur hans, hafði hann þá einnig þjálfað fáeinn meistaraflokkinn (s.s. hjá Hetti og í Vestmannaeyjum), þó aldrei í Úrvalsdeildinni.
Karfan hafði samband við Björn við þetta tækifæri og fékk að spyrja hann aðeins út í hluti.
Hvað kom það til að þú ákvaðst að taka við KR?
Gott tækifæri á hárréttum tíma til að þjálfa í Úrvalsdeild.
Hvernig sérðu liðið fyrir þér?
Hópurinn verður nokkurnvegin sá sami og í fyrra eins og staðan er í dag. Annars er þetta allt í vinnslu og verður vonandi allt komið á hreint sem fyrst.
Hverskonar breytingar koma með þér sem þjálfara?
Kem inn með meiri metnað, aga og hugarfarsbreytingu!
Við ætlum okkur klárlega að gera mun betur en í fyrra. KR á aldrei að vera í botnbaráttu.
Hvernig körfubolta ætlar KR að spila næsta season?
Agaðan og skipulagðan körfubolta. Það sem ég ætlast til af þeim sem munu klæðast KR treyjunni næsta vetur er að þær mæti í alla leiki til að leggja sig fram 150%, skutli sér í alla lausa bolta, spili hörku vörn og leggji allt í sölurnar.
Kemur ekkert annað til greina!
Verður það run-gun Keflavíkurbolti?
Tel það ólíklegt en hver veit.
Ef þú fengir að velja 2 leikmenn til að byggja á (úr öðru liði), hverjar væru það þá og afhverju?
Myndi velja stelpurnar sem eru nú þegar í KR nr 1,2 og 3.
Annars eru allir leikmenn velkomir til mín í KR!
Var ekkert erfitt að svíkja lit fyrir hið svarhvíta?
Enginn að svíkja neinn. Ég er að gera þetta á réttum forsendum og hlakka til næstu tveggja tímabila. Er búinn að standa mína plikt og rúmlega það í Keflavík undanfarin 5 ár. Það var einfaldlega kominn tími á nýtt “challenge” og þ.a.l. tel ég þetta vera góða ákvörðun fyrir bæði mig og KR. Vann með ótrúlega flottum leikmönnum í Keflavík og mun án efa sakna þeirra, en núna er sá kafli búinn í bili og nýtt ævintýri hefst með KR!




