spot_img
HomeFréttirBjarni Guðmann vakti athygli í sögulegum sigri Fort Hays á Kansas State

Bjarni Guðmann vakti athygli í sögulegum sigri Fort Hays á Kansas State

Háskólaboltinn í Bandaríkjunum er farinn á fullt skrið. Byrjunin á mótinu þetta árið hefur verið heldur áhugaverð enda mikið um óvænt úrslit.

Borgnesingurinn Bjarni Guðmann Jónsson og lið hans Fort Hays háskólinn hefur heldur betur vakið athygli eftir gærkvöldið þar sem liðið mætti liði Kansan State.

Kansas State spilar í Big Ten deildinni í fyrstu deild háskólaboltans, liðið er nánast undantekningarlaust í Mars brjálæðinu (mars madness). Fort Hays gerði sér lítið fyrir og vann öruggan sigur á Kansas State 81-68 þrátt fyrir að þrjá þjálfara hafi vantað í þjálfarateymi liðsins.

Bjarni Guðmann var í stóru hlutverki að vanda og endaði með 12 stig á 22 mínútum. Leikurinn var sýndur á stórri bandarískri sjónvarpsstöð og er óhætt að segja að Bjarni hafi hlotið athygli fyrir sína frammistöðu. Hann átti frábær tilþrif í leiknum líkt og má sjá hér að neðan:

Fort Hays hafði tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins en varð með þessum sigri fyrsta liðið sem ekki spilar í efstu deild háskólaboltans til að vinna lið í stærstu deildunum á útivelli síðan árið 2000.

Fréttir
- Auglýsing -