spot_img
HomeFréttirBjarni Guðmann og Fort Hays lögðu Pittsburg State

Bjarni Guðmann og Fort Hays lögðu Pittsburg State

Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers lögðu Pittsburg State í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 51-70.

Það sem af er tímabili hafa Fort Hays unnið þrettán leiki og tapað þremur.

Bjarni átti í þónokkrum villuvandræðum í leiknum, en á 9 mínútum spiluðum fékk hann 5 villur, en skilaði einnig 2 stigum, 2 fráköstum og stolnum bolta.

Næsti leikur Bjarna og Fort Hays er á morgun mánudag 24. janúar gegn Missouri Western.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -