spot_img
HomeFréttirBirna Valgerður allt í öllu í fyrsta sigurleik Bearcats í vetur

Birna Valgerður allt í öllu í fyrsta sigurleik Bearcats í vetur

Birna Valgerður Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats unnu í kvöld sinn fyrsta sigur á tímabilinu í bandaríska háskólaboltanum er liðið lagði UMBC Retrievers, 60-65. Var þetta í annað skiptið sem liðin mætast á jafn mörgum dögum, en í gær fóru UMBC með sigur af hólmi.

Birna Valgerður var allt í öllu í þessum sigurleik Bearcats. Skilaði 22 stigum, 7 fráköstum, 2 vörðum skotum og stolnum bolta, en hún leiddi liðið bæði í fráköstum og stigum. Næsti leikur Bingamton er á nýju ári, 2. janúar gegn Hartford Hawks.

Tölfræði leiks

ESPN spilarinn – Heimili bandaríska háskólaboltans

Fáðu áskrift að ESPN spilaranum í gegnum Körfuna með 30% afslætti með því að skrá þig hér og nota afsláttarkóðann ESPNPLAYERXMAS

  • ESPN er heimili bandaríska háskólakörfuboltans og þar eru sýndir yfir 1000 leikir á tímabili
  • Ef þú býrð til aðgang fyrir 7. Janúar hér og setur inn ESPNPLAYERXMAS í promo code, þá færðu 30% afslátt
  • 12 mánuðir kosta aðeins 7700 kr.
  • Þetta tilboð rennur út 7. Janúar
  • Nýjar áskriftir hafa 7 daga prufutímabil
Fréttir
- Auglýsing -