Menn meiðast í hrönnum þessi dægrin í NBA deildinni og barma sér yfir miklu leikjaálagi en að því er ekki spurt og keyrt áfram enda 11 leikir í dagskránni í deildinni í nótt þar sem Mr. Big Shot, einnig þekktur sem Chaunsey Billups kláraði Dallas og Philadelphia 76ers lágu á heimavelli gegn Denver Nuggets.
LA Clippers 91-89 Dallas
Mo Williams kom með 26 stig af bekknum hjá Clippers og Billups bætti við 21 stigi en Clippers leika enn á Chris Paul sökum meiðsla. Blake Griffin var svo með myndarlega tvennu, 14 stig og 17 fráköst og lét sig ekki heldur muna um að gefa 7 stoðsendingar. Hjá Dallas voru tveir jafnir með 17 stig, þeir Dirk Nowitzki og Delonte West. Billups átti lokaorðið fyrir Clippers þegar hann smellti niður sigurþristinum og skildi eftir 1 sekúndu á klukkunni sem nægði Dallas ekki til að jafna metin. 4,2 sekúndur voru eftir þegar Clippers áttu innkastið og voru undir 89-88.
Philadelphia 104-108 Denver (framlengt)
Andre Miller fór á kostum í liði Denver og daðraði við þrennuna með 28 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst. Hjá Philadelphia var Thaddeus Young atkvæðamestur með 22 stig og 7 fráköst af bekknum. Denver urðu í nótt fyrsta liðið í NBA deildinni til að leggja Philadelphia að velli á þeirra heimavelli.
Önnur úrslit næturinnar:
Washington 105-102 Oklahoma
Orlando 83-85 San Antonio
Boston 96-73 Toronto
New Jersey 107-100 Golden State
New York 88-91 Phoenix
Atlanta 92-89 Portland
New Orleans 87-93 Memphis
Minnesota 93-85 Detroit
Sacramento 92-88 Indiana
Mynd/ Billups var hetja Clippers í nótt.