Komið er að bikarúrslitum í yngri flokkum og að þessu sinni fara þau fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar TV munu sýna frá leikjum helgarinnar svo það er um að gera að kíkja inn á www.haukar.is og finnar þar vefsjónvarpið. Fjörið hefst í dag kl. 10.15 með viðureign Hauka og Tindastóls í 9. flokki karla og stendur keppnisdagurinn fram á kvöld.
Laugardagur:
—————-
kl. 10.15 – 9. karla
Haukar – Tindastóll
kl. 12.00 – 10. kvenna
Keflavík – Njarðvík
kl. 14.00 – 11. drengja
Njarðvík/Grindavík – KR
kl. 16.00 – Unglinga kvenna
Snæfell – Keflavík
kl. 18.00 – Unglinga karla
Hamar/ÞórÞ Þ. – Haukar
Sunnudagur:
—————-
kl. 10.15 – 9. kvenna
Grindavík – Keflavík
kl. 12.00 – 10. karla
Höttur – Stjarnan
kl. 14.00 – Stúlknaflokkur
Haukar – Keflavík
kl. 16.00 – Drengjaflokkur
FSu – Njarðvík
Glæsileg umgjörð verður á úrslitahelginni, þar sem meðal annars, verður veitingasala, leikmannakynning verður fyrir alla leiki, leiksskrá verður gefin út fyrir hverng leik og allir leikirnir verða sýndir í beinni á netinu á Haukar-TV þar sem þulir lýsa.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að mæta og styðja sín lið og sjá efnilegustu leikmenn landsins etja kappi á þessum skemmtilega viðburði sem úrslitahelgi bikarkeppninnar er.





