Bikarúrslitahelgi yngriflokka heldur áfram í dag að Ásvöllum í Hafnarfirði. Fjórir leikir eru á dagskránni en í gær voru það Tindastóll, Keflavík, Njarðvík/Grindavík, Snæfell og Haukar sem lönduðu bikarmeistaratitlum. Tveir þeirra voru sögulegir þar sem Tindastóll landaði sínum fyrsta bikartitli í karlaflokki og Snæfell sínum í kvennaflokki.
Bikarúrslitaleikir dagsins:
Sunnudagur:
kl. 10.15 – 9. kvenna
Grindavík – Keflavík
kl. 12.00 – 10. karla
Höttur – Stjarnan
kl. 14.00 – Stúlknaflokkur
Haukar – Keflavík
kl. 16.00 – Drengjaflokkur
FSu – Njarðvík





