HomeFréttirBikarúrslit kvenna 2011: Keflavík vann í tólfta sinn

Bikarúrslit kvenna 2011: Keflavík vann í tólfta sinn

 
 
Keflavík er Poweradebikarmeistari í kvennaflokki árið 2011. Keflavík lagði KR í bikarúrslitum í Laugardalshöll, lokatölur 62-72 Keflavík í vil þar sem Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir var valin besti maður leiksins. KR leiddi í hálfleik en magnaður þriðji leikhlut hjá Keflavík þar sem vörnin var í eldlínunni skóp sigurinn og fagnaðarlætin létu ekki á sér standa í leikslok enda höfðu síðustu þrjár bikarferðir Keflavíkur í Höllina ekki borið ávöxt. Enginn var þó kátari en John Silver, betur þekktur sem Jón Halldór Eðvaldsson sem nú getur lagt bikargælunafnið sitt til hinstu hvílu.
Keflvíkingar urðu fyrri til þess að sýna vígtennurnar, Birna Valgarðsdóttir setti niður þrist og breytti stöðunni í 2-7 fyrir Keflavík, skömmu síðar var Bryndís Guðmundsdóttir á ferðinni fyrir utan og breytti stöðunni í 2-12 og þá tók Hrafn Kristjánsson leikhlé fyrir KR sem áttu bágt gegn grimmri vörn Keflavíkur.

 
Messan hjá Hrafni í leikhléinu hafði tilætluð áhrif, KR gerði næstu átta stig í röð og minnkaði muninn í 10-12. Chazny Morris hóf leik á bekknum hjá KR en kom heit inn, setti tvo mikilvæga þrista og minnkaði muninn í 16-19 og þannig stóðu leikar eftir fyrsta leikhluta þar sem Keflvíkingar léku fína vörn og skotnýting KR var í dræmari kantinum.
 
Vesturbæingar opnuðu annan leikhluta 4-0 og leiddu 20-19 þegar Jón Halldór tók leikhlé fyrir Keflavíkurliðið. Töluverð harka færðist í leikinn í öðrum leikhluta og baráttan varð gæðunum yfirsterkari eins og oft vill verða.
 
Signý Hermannsdóttir fann taktinn í liði KR og fór að skora í teignum eftir dræmar upphafsmínútur og var miðherjinn öflugi kominn með 10 stig í hálfleik. Signý kom KR í 31-27 en Pálína Gunnlaugsdóttir minnkaði muninn fyrir Keflavík í 31-30 með þriggja stiga körfu, KR átti þó lokaorðið og leiddu Vesturbæingar 33-30 í leikhléi og unnu annan leikhluta 17-11.
 
Chazny Morris var með 11 stig hjá KR í hálfleik og Signý Hermannsdóttir 10 en Jacquline Adamshick var með 11 stig í liði Keflavíkur.
 
Liðin settu snemma í þriðja leikhluta sinn hvorn þristinn og staðan var 38-38 þegar Keflvíkingar sögðu hingað og ekki lengra. Keflvíkingar skelltu í lás í vörninni og skoruðu 10 stig án þess að KR næði að svara og staðan orðin 38-48 Keflavík í vil.
 
Margrét Kara Sturludóttir var aðeins kominn með 4 stig í liði KR eftir þrjá leikhluta enda í góðri gæslu og dýrt fyrir Vesturbæinga að vera með sinn stigahæsta leikmann jafn kaldan og raun bar vitni. Hafrún Hálfdánardóttir náði þó að rjúfa áhlaup Keflavíkur og minnkaði muninn í 40-48 en það voru Keflvíkingar sem leiddu 44-54 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og unnu því þriðja leikhluta 11-24 þar sem vörn þeirra var allt að því óaðfinnanleg.
 
Adamshick fékk snemma sína fjórðu villu í fjórða leikhluta hjá Keflavík og hélt á bekkinn. Kjörið tækifæri fyrir KR að komast nærri en Keflavík var við stjórnartaumana og fóru langt með sigurinn þegar Birna Valgarðsdóttir skoraði ævintýralega körfu og fékk villu að auki og jók muninn í 54-68 þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum.
 
Sama hvað KR-ingar reyndu þá gekk lítið, skotnýting liðsins var dræm og hver boltinn á fætur öðrum hreinlega hrökk upp úr körfuhring Keflavíkur. Eftirleikurinn var því auðveldur, Keflavík kláraði dæmið 62-72.
 
Birna Valgarðsdóttir var valin besti maður leiksins með 14 stig og 4 fráköst. Adamshick bætti við 19 stigum og 14 fráköstum og
 
Dómarar leiksins: Einar Þór Skarphéðinsson og Eggert Þór Aðalsteinsson
Eftirlitsdómari: Guðni Eiríkur Guðmundsson
 
Heildarskor:
 
KR: Chazny Paige Morris 19/13 fráköst, Signý Hermannsdóttir 14/12 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 10, Hildur Sigurðardóttir 9/7 stoðsendingar, Margrét Kara Sturludóttir 6/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 2/5 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 2/6 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 0, Svandís Anna Sigurðardóttir 0, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0, Rut Konráðsdóttir 0.
 
Keflavík: Jacquline Adamshick 19/14 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/4 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 12/10 fráköst/6 stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 9/4 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Marín Rós Karlsdóttir 4, Marina Caran 3, Hrund Jóhannsdóttir 3/6 fráköst, Lovísa Falsdóttir 0, Árný Sif Gestsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0, Hrönn Þorgrímsdóttir 0.
 
Byrjunarliðin:
 
KR: Hildur Sigurðardóttir, Margrét Kara Sturludóttir, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Helga Einarsdóttir og Signý Hermannsdóttir.
 
Keflavík: Ingibjörg Jakobsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Jacquline Adamshick.
 
Um kl. 18:00 ætla Keflvíkingar að vera með bikarfögnuð í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ og er ráðgert að kvennalið Keflavíkur mæti með Poweradebikarinn til Reykjanesbæjar um kl. 18:00 og eru stuðningsmenn liðsins hvattir til að fjölmenna í Toyota-höllina og sjá liðið lyfta bikarnum á loft af svölum Toyota-hallarinnar.
 
Mynd og umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -