HomeFréttirBikarinn á loft í Borgarnesi í kvöld

Bikarinn á loft í Borgarnesi í kvöld

Síðasta umferð 1. deildar karla fer fram í kvöld með þremur leikjum en einn leikur er búinn í umferðinni og fór fram í gær þegar FSu vann á Akranesi. 

 

Ljóst er að Hamar mun mæta Snæfelli í úrslitakeppnninni og þá munu Vestri og Breiðablik mætast í hinni rimmunni, en í þeirri viðureign er ennþá óráðið hvort liðið fær heimaleikjaréttinn, en það ræðst einmitt á morgun eftir síðustu leikina í deildinni, endanleg röðun liðanna fyrir úrslitakeppnina.

 

Aftur á móti þá hafa Borgnesingar tryggt sér deildarmeistaratitilinn 2018 og eru því á leið í Dominos deildina á næsta tímabili. Mikið húllumhæ verður í Fjósinu í kvöld þegar bikarinn fer á loft. 

 

Leikir dagsins:

 

1. deild karla:

Hamar – Gnúpverjar kl 19:15

Snæfell – Breiðablik kl 19:15 (Bein útsending hjá Snæfell TV)

Skallagrímur – Vestri kl 19:15 (Bein útsending á Jakinn TV)
 

1. deild kvenna:

Þór Ak-Fjölnir kl 19:30 (Bein útsending á Thorsport.is)

Ármann – ÍR  kl 20:00

 

 

 
Fréttir
- Auglýsing -