Körfuknattleiksdeild Snæfells hélt lokahóf sitt síðustu helgi. Þar voru þeir leikmenn sem þóttu skara framúr í vetur verðlaunaðir. Kvennalið félagsins komst í undanúrslit bikarkeppninnar og úrslit Íslandsmótsins ásamt því að vinna deildarmeistaratitilinn. Karlaliðið hinsvegar féll úr deildinni eftir margra ára veru í deild þeirra bestu.
Verðlaunahafar á lokahófinu voru:
Meistaraflokkur kvenna
Besti leikmaður: Berglind Gunnarsdóttir
Besti ungi leikmaður: Rebekka Rán Karlsdóttir
Besti varnarmaður: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Besti leikmaður úrslitakeppni: Bryndís Guðmundsdóttir
Meistaraflokkur karla
Besti leikmaður: Árni Elmar Hrafnsson
Besti ungi leikmaður: Jón Páll Gunnarsson
Besti varnarmaður: Viktor Marínó Alexandersson
Myndir og fleira frá hófinu er að finna hér.