Undir 16 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland í dag í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio, 103-64.
Það sem af er hefur liðið því unnið tvo leiki og tapað einum, en næst eiga þær leik á laugardaginn gegn Danmörku.
Berglind Hlynsdóttir, Hafrós Myrra Hafsteinsdóttir og Helga Björk Davíðsdóttir spjölluðu við Körfuna eftir leik í Kisakallio. Berglind gat ekki tekið þátt í leik dagsins sökum meiðsla á hendi sem hún varð fyrir í leiknum gegn Svíþjóð í gær, en hún mun ekki leika meira með liðinu á mótinu.



