HomeBónus deildinBónus deild karlaBein útsending um Reykjavíkurliðin hér í kvöld kl. 21:00

Bein útsending um Reykjavíkurliðin hér í kvöld kl. 21:00

Körfuboltahlaðvarpið Run & Gun fer í loftið í beinni útsendingu hér í kvöld klukkan 21:00. Í þættinum verður rækilega hitað upp fyrir komandi átök í íslenska boltanum og sjónum beint sérstaklega að stóru Reykjavíkurliðunum – KR, Val og ÍR – þar sem málin verða krufin til mergjar.

Stjórnendur eru eins og áður Máté Dalmay og Tommi Steindórs, en gestur þeirra í kvöld verður Valsarinn Steinar Aronsson.

Körfuboltaáhugafólk er hvatt til að stilla inn hér klukkan 21:00 í kvöld og fylgjast með í beinni, en þátturinn verður einnig aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafninu Run & Gun.

Fréttir
- Auglýsing -