spot_img
HomeFréttirBein útsending: U18 landslið drengja hefur leik á EM gegn Bosníu

Bein útsending: U18 landslið drengja hefur leik á EM gegn Bosníu

Undir 18 ára landslið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Oradea í Ungverjalandi. Leikurinn er sá fyrsti hjá liðinu á mótinu en Ísland er með Bosníu, Noregi, Tékklandi, Lúxemborg og Ísrael. Fyrsti leikurinn á mótinu er gegn Bosníu og hefst hann kl 11 að íslenskum tíma.

Í vetur var valinn 12 manna lið og varamenn einnig sem hafa hæft með liðinu. Skömmu fyrir brottför meiddist Ingimundur Orri Jóhannsson frá Stjörnunni og þurfti hann að þeim sökum að draga sig úr liðinu fyrir EM vegna meiðslanna en hann lék með liðinu á NM í Finnlandi í júní og kom Einar Þorteinn Ólafsson frá Val inn í liðið í hans stað.

Þá kom Benedikt Guðmundsson einnig inn sem aðstoðarþjálfari nýlega þar sem Baldur Þór Ragnarsson, sem hefur verið aðstoðarþjálfari U18 drengja, er í verkefni með A-landsliði karla á næstu vikum.

Bein útsending verður hér að neðan, en hægt verður að skoða tölfræði leiksins, sem og þeirra leikja sem eru búnir hér.

https://www.youtube.com/watch?v=q9-soCkX_x0


Fyrir EM er Íslenska liðið og hópurinn þannig skipaður:

U18 drengja:

Ástþór Atli Svalason · Valur

Benóný Svanur Sigurðsson · ÍR

Dúi Þór Jónsson · Stjarnan

Einar Þorsteinn Ólafsson · Valur

Friðrik Anton Jónsson · Stjarnan

Hilmir Hallgrímsson · Vestri

Hugi Hallgrímsson · Vestri

Júlíus Orri Ágústsson · Þór Akureyri

Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn

Sveinn Búi Birgisson · KR

Veigar Páll Alexandersson · Njarðvík

Þorvaldur Orri Árnason · KR


Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson

Aðstoðarþjálfarar: Benedikt Guðmundsson og Þórarinn Friðriksson

Sjúkraþjálfari: Stefán Magni Árnason

Fréttir
- Auglýsing -