Íslenska landsliðið leikur þessa dagana á sterku fjögurra liða æfingamóti í Kazan ín Rússlandi. Fyrsta leik töpuðu þeir fyrir Þýskalandi á föstudaginn, en í gær sigruðu þeir Ungverjaland. Í dag leika þeir sinn lokaleik gegn heimamönnum í Rússlandi. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu og lifandi tölfræði af heimasíðu rússneska sambandsins.
Rússland – Ísland: Bein útsending og lifandi tölfræði