HomeFréttirBein útsending: Færast Blikar nær Dominos deildinni eða jafnar Hamar?

Bein útsending: Færast Blikar nær Dominos deildinni eða jafnar Hamar?

Leikur tvö í úrslitaseríu 1. deildar karla fer fram núna kl 19:15 í Smáranum. Þar mætir Breiðablik Hamri en Blikar leiða einvígið 1-0 eftir sigur á Hveragerði.

 

Sigra þarf þrjá leiki til að tryggja sæti í Dominos deild karla að ári og geta Blikar því komist skrefi nær því markmiði. Hamar getur á móti sótt heimaleikjaréttinn aftur fyrir næsta leik.

 

Breiðablik er að sjálfsögðu með beina útsendingu frá þessum mikilvæga leik og má finna hana hér að neðan. Helgi Hrafn Ólafsson lýsir leiknum.

 

Fréttir
- Auglýsing -