HomeFréttirBarcelona ósigraðir í jólafrí

Barcelona ósigraðir í jólafrí

 
Nú er komið jólafrí í Euroleague og verður ekki leikið aftur fyrr en dagana 6. og 7. janúar á nýja árinu. Eitt lið hefur fullt hús stiga í riðlakeppninni um jólin en það er Regal Barcelona sem unnið hefur alla átta leiki sína til þessa í A-riðli.
Síðasta umferð í Euroleague fór fram dagana 16. og 17. desember þar sem Barcelona burstaði Zalgiris 89-55. Pete Mickeal var stigahæstur í liði Barcelona í leiknum með 14 stig og var annar tveggja leikmanna í liði Barcelona sem komu af bekknum og gerðu 10 stig eða meira í leiknum. Hjá Zalgiris var Travis Watson stigahæstur með 17 stig og 14 fráköst. Zalgiris eru í bullandi vandræðum í A-riðli og hafa aðeins unnið 1 af 8 leikjum sínum og ljóst að vera þeirra í Euroleague þetta árið verður skammvinn.
 
Olympiacos og Unicaja eru jöfn á toppi B-riðils með 12 stig, 6 sigra og 2 tapleiki. Í C-riðli leiða Caja Laboral og CSKA Moskva bæði með 12 stig og í D-riðli eru líka tvö topplið með 12 stig en það eru Real Madrid og grísku naglarnir í Panathinaikos.
 
Þá var Aleks Maric leikmaður Partizan valinn besti leikmaður desembermánaðar en hann er á sínu fyrsta ári í Euroleagu með Partizan. Í leikjum Partizan í desember var Maric með 22 stig og 11,8 fráköst að meðaltali í leik og setti niður 80% teigskota sinna. Maric hefur vakið óskipta athygli í Euroleague með framgöngu sinni enda ekki mikið þekktur í Evrópuboltanum áður en hann kom til Partizan.
 
 
Ljósmynd/Euroleague: Aleks Maric leikmaður Partizan hefur vakið mikla athygli í Evrópuboltanum.
Fréttir
- Auglýsing -