HomeFréttirBaráttusigur hjá Grindavík gegn Fjölni (Umfjöllun)

Baráttusigur hjá Grindavík gegn Fjölni (Umfjöllun)

 
Það var mikilvægur leikur í Grindavík í dag þegar Grindavík og Fjölnir mættust en liðin voru jöfn með 6 stig í botnsætum Iceland Express deildar kvenna en aðeins eitt lið mun falla í 1.deild kvenna. Fjölnisstelpur spiluðu án Natöshu Harris en hún meiddist í leik gegn Njarðvík er hún lenti í samstuði við Juliu Demirer leikmann Njarðvíkur.
Grindavík pressaði allan leikinn og ætluðu greinilega að nýta sér það að Natasha Harris var ekki til staðar til að taka upp boltann fyrir Fjölni og það heppnaðist mjög vel en í 1.leikhluta stálu Grindavík boltanum 8 sinnum og voru Fjölnisstelpur með 9 tapaða bolta eftir aðeins 10 mín leik. Það var rosalega barátta í Grindavíkurliðinu og staðan eftir 1.leikhluta var 22-10 fyrir Grindavík og Berglind Anna Magnúsdóttir komin með 7 stig fyrir Grindavík og Anija Reke búin að stela boltanum 5 sinnum fyrir Grindavík. Lítið gekk hjá Fjölni á þessum tíma og áttu þær í miklum erfiðleikum við að fá góð skot í sókninni og var Bergþóra Holton Tómasdóttir líflegust með 6 stig af þessum 10 sem Fjölnir skoraði í leikhlutanum.
 
Leikurinn jafnaðist aðeins í 2.leikhluta og Fjölnir átti auðveldara með að komast upp völlinn gegn pressu Grindvíkinga. Tapaðir boltar voru samt mikið vandamál hjá Fjölni en þær töpuðu 9 boltum í leikhlutanum en Grindavík náði ekki að nýta sér það eins vel og í 1.leikhluta.
 
Leikhlutinn fór 18-15 og var Janese Banks sjóðandi heit með 11 stig fyrir Grindavík en Bergþóra hélt áfram að leiða Fjölnisliðið og skoraði 10 stig.
 
Eitthvað hefur Bragi Magnússon, þjálfari Fjölnisstelpna, sagt við sínar stelpur í hálfleik því þær mættu einbeittar til leiks í 3ja leikhluta sem var jafn og skemmtilegur. Fjölnisstelpur reyndu eins og þær gátu til þess að minnka muninn en baráttan í Grindavíkurliðinu var rosaleg og ljóst að þær ætluðu ekki að láta af forustunni. Vandamál Fjölnis í þessum leikhluta, eins og í leiknum öllum var tapaðir boltar en þær töpuðu 10 boltum í þessum leikhluta og alls töpuðu þær boltanum 38 sinnum í leiknum og Grindavík stal 24 sinnum boltanum og skoruðu oft auðveldar körfur í framhaldinu. Fjölnir vann samt þennan leikhluta 20-18. Bergþóra fékk núna meiri hjálp hjá liðsfélögum sínum og átti Erla Sif Kristinsdóttir góða spretti í leikhlutanum og Inga Buzoka fékk að athafna sig meira inn í teig. Hjá Grindavík dreifðist stigaskorið meira en það var virkilega gaman að fylgjast með hversu vel boltinn flæddi hjá stelpunum og augljóst að Harpa og Helga Hallgrímsdætur eiga auðvelt með að finna hvor aðra inn í teig.
 
Í fjórða leikhluta leikhluta fóru Fjölnisstelpur að missa trúna og sást það á leikmönnum liðsins, þetta nýtti Grindavík sér vel og gáfu allt í til þess að tryggja sigurinn en Grindavík vann seinasta leikhlutann 24-6 og átti Heiða Valdimarsdóttir mjög góða innkomu og hitti úr 4 af 5 skotum sem hún tók í leiknum ásamt því að stela boltanum 2 sinnum á þeim 11 mínútum sem hún spilaði.
Þetta var frábær leikur hjá Grindavík sem börðust eins og ljón allan leikinn, pressuðu stíft og ætluðu sér sigur. Allir leikmenn lögðu sitt af mörkum og mátti oft á tíðum sjá 2-3 leikmenn skutla sér á eftir öllum lausum boltum. Fjölnisstelpur áttu erfitt þar sem Natasha spilaði ekki með og sást það á leik þeirra og áttu þær í miklum vandræðum með pressuna sem sést á því að Fjölnir tapaði boltanum 38 sinnum í leiknum og var Grindavík með 24 bolta stolna.
 
Hjá Grindavík var Janese Banks virkilega góð með 31 stig og 11 fráköst, Agnija Reke leiddi liðið áfram og þótt hún hafi aðeins skorað 6 stig þá var hún með 10 stoðsendingar og 10 stolna. Berglind Anna Magnúsdóttir (17 stig o g7 fráköst), Helga Hallgrímsdóttir (10 stig og 15 fráköst), Harpa Hallgrímsdóttir (6 stig og 8 fráköst) og Heiða Valdimarsdóttir (8 stig) áttu einnig glimrandi leik ásamt því sem Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var snögg og aggresív fremst í pressu Grindavíkur.
 
Hjá Fjölni báru Bergþóra Holton Tómasdóttir (19 stig, 7 stoðsendingar) og Inga Buzoka (19 stig og 16 fráköst) af og leiddu liðið áfram en þeim sárlega vantaði meiri aðstoð frá öðrum leikmönnum en sem dæmi má nefna þá skoruðu Birna Eiríksdóttir og Eva María Emilsdóttir ekki stig í leiknum og munar um minna fyrir Fjölni.
 
Umfjöllun: Bryndís Gunnlaugsdóttir
Fréttir
- Auglýsing -