HomeFréttirBaldur Már þjálfar við Raptors Basketball Academy

Baldur Már þjálfar við Raptors Basketball Academy

Baldur Már Stefánsson þjálfar nú við körfuboltabúðir Toronto Raptors en Baldur er íþróttafræðingur frá Akureyri og tók við þjálfun kvennaliðs Þórsara undir lok síðasta leiktímabils.
,,Ég hef verið að spila með Þór síðan ég kláraði íþróttafræðina frá KHÍ 2004 fyrir utan 2005-06 tímabilið þegar ég var með Tindastól. Hef verið að þjálfa yngri flokka þessi ár og var síðastliðinn vetur með umsjón afrekshóps og tók svo reyndar líka við mfl kvk undir lok tímabils,“ sagði Baldur en hvernig kom það til að hann sé nú að þjálfa í körfuboltabúðum hjá Toronto?
 
,,Konrad Tota sem var spilandi þjálfari hjá Þór í fyrra hafði þjálfað í þessum búðum í fyrra og benti mér á að það sakaði ekki að reyna að komast þarna inn. Svo ég sendi inn umsókn í apríl síðastliðnum og fékk svo svar um miðjan maí að ég væri á lista yfir þá sem kæmu til greina en ekki var víst hversu margir af um 20 þjálfurum frá í fyrra myndu koma aftur. Svo um miðjan júní fékk ég það staðfest að ég hefði hlotið stöðuna,“ sagði Baldur en hver verður hans aðkoma?
 
,,Þessar búðir eru árlega og eru allstórar, fyrir efnilega krakka frá 8 ára til 17. Skipt er í hópa eftir aldri en ég mun aðallega vera með eldri hópnum, 12-17 ára. Þetta eru um 200 krakkar í heildina og rúmlega 20 þjálfarar. Á hverju ári eru einhverjir gestaþjálfarar, leikmenn úr Raptors liðinu (í fyrra voru það DeMar DeRozan og Sonny Weems). En í ár setur verkfallið strik í reikninginn með það, en í staðinn heyrði ég að Jerome "Junkyard dog" Williams og Muggsy Bogues verði sérstakir gestir í ár. Er sérstaklega spenntur fyrir að hitta Muggsy Bogues sem var klárlega einn af þeim leikmönnum sem maður fylgdist með í den,“ sagði Baldur sem þekkir nokkra við búðirnar.
 
,,Ég er virkilega spenntur fyrir þessu verkefni en ég þekki nú þegar þrjá af þjálfurunum en ásamt Tota verður líka Silver Laku sem spilaði með Skallagrím og Zack Bajric sem kom og heimsótti okkur Þórsara í vetur. Ég mun vera úti í 16 daga og ekki ólíklegt að þetta verði árleg ferð héðan í frá.“
 
Heimasíða búðanna er:
 
Mynd/ Baldur Már Stefánsson þjálfar nú við körfuboltabúðir Toronto Raptors.
 
Fréttir
- Auglýsing -