HomeFréttirAuðvelt hjá KR í Ljónagryfjunni

Auðvelt hjá KR í Ljónagryfjunni

 KR-ingar fóru illa með "ljónin" úr Njarðvíkum í kvöld þegar þeir sigruðu með 20 stiga mun 71:91 í Iceland Express deildinni.  Með frábærum fyrri hálfleik gerðu KR út um leikinn og gátu leyft sér að spila á hálfum hraða í þeim seinni.
 Njarðvíkingar voru eitthvað utan við sig í fyrri hálfleik og nánast ekki mættir. Leikur liðsins var allt of hægur sem gerði það að verkum að gestirnir gátu gefið sér góðan tíma í að stilla upp varnarleik sínum sem var gríðarlega þéttur á tímum.  Svo þéttur í fyrri hálfleik að varla komst eitt leikkerfi í gang hjá þeim grænklæddu allan fyrri hálfleikinn. 
 
Í seinni hálfleik hófu svo heima menn að spila körfuknattleik og það sem hefur vantað í leik liðsins í allan vetur var baráttan og það að fórna sér fyrir liðið. Jóhann Árni sýndi að þetta er til í liðinu og á nokkrum mínútum var kappinn að spila gríðarlega sterka vörn og skutlaði sér á lausa bolta og virtist þetta smita út frá sér. En þessi barátta kom einfaldlega of seint. 
 
Njarðvíkingar höfðu minnkað munin niður í 13 stig þegar um 6 mínútur voru til leiksloka og hársbreidd frá því að ná muninum niður í þennan sálræna eins stig tölu. En þá einfaldlega gáfu gestirnir aðeins í og skoruðu á innan við mínútu næstu 8 stig og voru komnir aftur í 20 stiga forystu. 
 
Svo fór að þeir röndóttu lönduðu öruggum sigri og herja nú hart að efsta sæti deildarinnar. 
 
Viðtöl eftir leik er hægt að sjá á Karfan TV. 
Fréttir
- Auglýsing -