HomeFréttirÁtti erfitt með að koma mér fram úr

Átti erfitt með að koma mér fram úr

Hanna Sesselja Hálfdanardóttir fyrrum leikmaður Hauka hefur ákveðið að snúa aftur á fjalirnar eftir um þriggja ára fjarveru. Eins og fram hefur komið hér á karfan.is þá ætlar Hanna að spila með Val í vetur og ætti að vera þeim fínn styrkur þar sem landsliðsmiðherjinn Signý Hermannsdóttir yfirgaf herbúðir þeirra fyrir tímabilið.
Hanna hefur undanfarið barist við ýmis meiðsli og var hún orðin svo langt leidd af þeim að hún átti oft á tíðum erfitt með að koma sér fram úr rúminu eftir leiki eða æfingar.
 
Þegar hún var spurð að því hvað hafi komið til að hún ákvað að skella sér aftur í baráttuna þá stóð ekki á svörum.
 
„Körfubolti er einfaldlega skemmtilegasta íþróttin. Þegar ég er með boltann í hendinni þá líður mér bara óendanlega vel og ég vildi að ég hefði ekki misst úr síðustu þrjú ár en svona er þetta, það er ekki sjálfgefið að geta spilað körfubolta.”
 
Ástæða þess að Hanna hætti að spila á sínum tíma voru þrálát meiðsli í baki, bólgur í millirifjavöðvum, álagsmeiðsli í öxlum og vegna æðahnúta í fótum. Hanna segir að þessi blanda hafi verið til þess að hún gat líkamlega ekki getað spilað körfubolta en hún hafi samt reynt að halda sér í formi á annan hátt.
 
„Ég hef aldrei hætt að hreyfa mig,ég hljóp og lyfti mikið, gat ekki synt og lítið hjólað fyrst en er öll að koma til. Í sumar var ég í fjarþjálfunarprógrammi hjá fjarþjálfun.is tvo mánuði í röð og það gekk mjög vel. Ég styrkti mig heilmikið ásamt því að sársaukaþröskuldurinn jókst. Ég hef einnig verið í kettlebells hjá Mjölni og keypti mér síðan sjálf eina ketilbjöllu sem ég nota einstaka sinnum til að styrkja allan líkamann en einna helst bakið.”
 
Hanna segir að það hafi verið mjög erfitt fyrir sig að viðurkenna það að hún þyrfti að taka sér frí frá körfubolta. Henni var kennt að maður uppsker eins og maður sáir og að aukaæfingin skapi meistarann en í stað þess að fara fram við æfingar eins og flestir þá var hún farin að fara aftur.
 
„Í staðin fyrir að bæta mig eins og allar aðrar í liðinu þá fór mér bara aftur og ég þurfti að hafa enn meira fyrir því að halda fyrri getu og heilsu þannig þetta var orðið of erfitt að vera í nálastungum, hnykkingum, nuddi, æfingum, aukaæfingum og svo má ekki gleyma því mikilvægasta skólanum.”
 
Hanna heldur í vonina að geta tekið eitt tímabil þar sem hún er heil allan tíman og að hún geti beitt sér vel í vörn og sókn en hún hefur eins og hún segir sjálf frá ekki verið neitt sérstakur sóknarleikmaður.
 
En af hverju valdi Hanna Val?
 
„Valur eru rauðir og hvítir, skýrðir í höfuðið á fugli og Séra Friðrik var stofnandi í félaginu. Haukar eru rauðir/hvítir, skýrðir í höfuðið á fugli og Séra Friðrik var stofnandi í félaginu, þannig að ég lít ekki á það að ég sé að svíkja mitt fyrra lið. Margrét (Rósa Hálfdanardóttir) systir sér um að halda heiðri fjölskyldunnar í mfl. kvk. í Haukum.”
 
„Ég var ekki alveg viss hvað ég vildi gera. Ég vil bara æfa/spila körfubolta. Ég fór á eina Hamarsæfingu og það var virkilega gaman, fínar
stelpur og frábær þjálfari. Eina með Hamar að það er svolítið langt í burtu fyrir mig og það hefði ekki gengið gagnvart skólanum. Valur er mjög
nálægt skólanum þannig að strax eftir skóla klukkan þá get ég skotist út í Valsheimili til að fara á æfingu.”
 
Hönnu lýst vel á Valsliðið. Segir að þetta séu frábærar stelpur og að það hafi verið tekið vel á móti henni.
 
„Þetta eru dugnaðarforkar og hlakka ég til að halda áfram að æfa með þessum stelpum í vetur. Þetta verður spennandi kvennakörfubolti í vetur, frábærir leikmenn í öllum liðum þannig það verður blóð, sviti og tár fram á síðasta leik, ekkert gefið eftir.”
 
„Við sjáum bara til hvað setur og ég tek eina æfingu í einu og einn leik í einu. Skólinn gengur klárlega fyrir og strax þá situr hann smá á hakanum þannig að skipulagið þarf að koma fljótt inn ef ég á að geta mætt á allar æfingar, spilað leikina og staðið mig í skólanum.”
 
Emil Örn Sigurðsson
 
mynd: karfan.is
Fréttir
- Auglýsing -