HomeFréttirÁtta liða úrslit Maltbikarsins hefjast - Tvíhöfði í Keflavík

Átta liða úrslit Maltbikarsins hefjast – Tvíhöfði í Keflavík

Maltbikarinn rúllar aftur af stað í dag en þá hefjast átta liða úrslit keppninnar. Eftir daginn í dag verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum kvenna ein einn leikur fer fram í átta liða úrslitum karla. 

 

Í Keflavík fá bikarmeistararnir efsta liðið í 1. deild kvenna í heimsókn. Í Stykkishólmi er topplið Vals í heimsókn og Njarðvík freistar þess að halda bikardraumnum lifandi þegar liðið mætir Breiðablik. Þá fara ÍR-ingar í Borgarnes þar sem Skallagrímur tekur á móti þeim. 

 

Stórleikur er í Maltbikar karla þegar topplið Hauka sækir Keflavík heim. Liðin mættust í Dominos deildinni fyrr í vetur þar sem Keflavík hafði betur á Ásvöllum.

 

 

Alla leiki dagsins má finna hér að neðan:

 

 

Leikir dagsins: 

 

Maltbikar kvenna – Átta liða úrslit: 

 

Keflavík – KR kl 13:45
 

Snæfell – Valur kl 19:15

 

Njarðvík – Blix kl 19:15

Skallgrímur – ÍR kl 19:15

Maltbikar karla – Átta liða úrslit:

 

Keflavík – Haukar kl 16:00 í beinni á RÚV
 

Fréttir
- Auglýsing -