spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaArnþór eftir leik á Flúðum "Þetta ætlar ekki að falla hjá okkur"

Arnþór eftir leik á Flúðum “Þetta ætlar ekki að falla hjá okkur”

Í kvöld fór fram á Flúðum leikur Hrunamanna og ÍA í 1. deild karla, leikur sem búið er að fresta tvisvar sökum Covid-smita og ófærðar. Liðin hafa mæst tvisvar áður á leiktíðinni. Fyrst unnu Hrunamenn heimaleik með litlum mun en Skagamenn unnu öruggan sigur á Akranesi og er það eini sigur liðsins í vetur. Í kvöld höfðu Hreppamenn sigur en það mátti ekki miklu muna, lokatölur voru 93-92.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Arnþór Fjalarsson leikmann ÍA eftir leik á Flúðum. Arnþór átti ágætisleik þrátt fyrir tapið, skilaði 7 stigum og 4 fráköstum á um 19 mínútum spiluðum.

Fréttir
- Auglýsing -