spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÁrni Eggert tekur við Tindastóli

Árni Eggert tekur við Tindastóli

Árni Eggert Harðarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli, en Skagfirðingar tilkynntu þetta á Facebook-síðu sinni nú fyrir skemmstu. Árni Eggert, sem starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR, gerir tveggja ára samning við Stólana og mun stýra liðinu í 1. deild kvenna á komandi tímabili.

Árni hefur áður þjálfað kvennalið Breiðabliks og karlalið Vængja Júpíters, auk þess að aðstoða Borche Ilievski hjá karlaliði ÍR. Þar að auki starfaði Árni hjá KKÍ við góðan orðstír um árabil.

Tindastóll endaði í sjötta sæti 1. deildar kvenna á liðnu tímabili, með 6 sigra og 12 töp.

Fréttir
- Auglýsing -