HomeNeðri deildir1. deild kvennaEinn leikur á dagskrá í 1. deild kvenna í kvöld

Einn leikur á dagskrá í 1. deild kvenna í kvöld

Einn leikur fer fram í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar Þór tekur á móti Aþenu í Þorlákshöfn. Flautað verður til leiks klukkan 19:15.  

Fyrir leikinn sitja Þórsarar í 2. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tvo sigra í fyrstu þremur umferðunum. Aþena vermir hins vegar 9. sætið með tvö stig, eftir einn sigur og tvö töp.

Fréttir
- Auglýsing -