HomeNeðri deildir1. deild karlaÁrmann hafði betur í yfir 200 stiga háspennuleik í Smáranum

Ármann hafði betur í yfir 200 stiga háspennuleik í Smáranum

Ármann hrósaði naumum 105–101 sigri gegn Breiðabliki í æsispennandi og gríðarlega stigaháum æfingaleik meistaraflokks karla í Smáranum í kvöld.

Leikurinn var hreint ótrúleg skotveisla beggja liða frá upphafi til enda þar sem varnirnar máttu sín lítils gegn funheitum sóknarleik. Mikil spenna ríkti á lokasekúndunum en Ármenningar reyndust öflugri á lokasprettinum og tryggðu sér fjögurra stiga sigur.

Í liði Ármanns voru þeir Adam og Arnaldur atkvæðamestir með 22 stig hvor, Kynion setti 19 stig og Ingvi bætti við 16 stigum. Hjá Blikum fór Adrien á kostum og var stigahæstur á vellinum með 34 stig, Viktor skilaði frábærum 32 stigum og Einar bætti við 16 stigum en það dugði ekki til gegn Ármanni.

Fréttir
- Auglýsing -