Ármann sigraði Tindastól, 81–74, í æfingaleik meistaraflokks kvenna í kvöld.
Tindastóll byrjaði leikinn af krafti og hafði fimm stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 24–19, en staðan var 38–31 fyrir Stólakonur í hálfleik. Ármenningar komu hins vegar sterkari til baka í seinni hálfleiknum og tryggðu sér sjö stiga útisigur eftir harða baráttu á lokasprettinum.

Í liði Tindastóls var Florencia stigahæst með 27 stig og Quinzia fylgdi fast á hæla hennar með 24 stig. Kolbrún skoraði 9 stig, Inga bætti við 8 stigum og Macarena setti 6 stig.
Hjá Ármanni fór Diamond fyrir sínu liði með 24 stig og Edyta skilaði 17 stigum. Þá áttu Jónína með 14 stig og Birgit með 13 stig sömuleiðis flottan leik í sókninni.





