Ari Gunnarsson gekk í raðir KR í gær en hann réð sig sem aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki kvenna. Samningur Ara er til tveggja ára en hann hefur þjálfað bæði kvennalið Hamars og Vals og á síðustu leiktíð þjálfaði hann karlalið Leiknis í 1. deild karla.
Við þessa ráðningu er þjálfarateymi KR-kvenna full mótað en auk Hrafns Kristjánssonar og Ara Gunnarssonar hefur Guðmundur Daði Kristjánsson verið fenginn til að sjá um styrktarþjálfun liðsins.
Mynd: Ari ásamt Böðvari Guðjónssyni formanni kkd. KR – www.kr.is




