HomeFréttirÁrgangur 2002 frá Val vann Scania Cup

Árgangur 2002 frá Val vann Scania Cup

 

Árgangur drengja sem fæddir eru árið 2002 úr Val sigraði í dag Scania Cup í sínum aldursflokki, en mótið er óopinbert Norðurlandamót félagsliða. Sigruðu þeir danska liðið AGF í úrslitaleiknum með 72 stigum gegn 68.

 

Eftir mótið voru þeir Ólafur Gunnlaugsson og Gabríel Boama báðir valdir í úrvalslið mótsins. Þá var Gabríel einnig valinn besti leikmaður mótsins og er með því kominn í hóp með ekki minni leikmönnum en Jóni Arnóri Stefánssyni, Hauki Helga Pálssyni, Helenu Sverrisdóttur og fleirum sem Scania Kóngur þessa móts.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -