Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla í kvöld.
Í Ljónagryfjunni töpuðu heimamenn í Njarðvík fyrir KR. Íslandsmeistararnir því komnir í 2-0 og geta með sigri komandi fimmtudag bókað farseðil í undanúrslitin.
Í Ásgarði jöfnuðu heimamenn í Stjörnunni einvígi sitt gegn ÍR með sigri í spennandi leik.
Í úrslitakeppni 1. deildar karla sigraði Hamar lið Snæfells og eru þeir því komnir í 2-0 í einvíginu, en það þarf 3 sigurleiki til þess að komast í úrslitaeinvígið.
Umfjallanir, myndir og viðtöl frá leikjum kvöldsins eru væntanleg með kvöldinu.
Úrslit kvöldsins
Dominos deild karla – Átta liða úrslit:
(Einvígið er jafnt 1-1)
(KR leiðir 2-0)
Úrslitakeppni 1. deildar karla:
(Hamar leiðir 2-0)



