ÍR-ingar tóku á móti Haukum í kvöld í Iceland Express-deild karla. Fyrir leikinn þóttu Haukar sigurstranglegri enda ofar í töflunni og unnu léttan sigur síðast þegar þessi lið mættust. En ÍR-ingar sýndu að gott gengi þeirra að undanförnu er engin tilviljum og unnu sanngjarnan og sannfærandi 104-86 sigur.
Haukar skoruðu fyrstu stig kvöldsins og komust í tvö-núll en það var í fyrsta og eina skiptið sem gestirnir úr Hafnarfirði höfðu forskotið í leiknum. Næstu stig komu frá heimamönnum sem leiddu 6-2. ÍR-ingar voru sjóðandi í leiknum. Haukarnir réðu ekki við sóknarleik ÍR-inga og skiptu fljótlega í svæðisvörn í fyrsta leikhluta. Það virtist ekki skipta öllu máli þar sem ÍR hélt áfram að salla niður stigum á gestina sem stóðu ráðþrota. Að loknum fyrsta leikhlta var staðan 32-20 heimamönnum í vil.
Í öðrum leikhluta náðu Haukar að minnka muninn og fór hann niður í fimm stig 32-27. ÍR-ingar juku muninn á ný og var hann um 10 stig út leikhlutann. ÍR-ingar léku frábæran sóknarleik og fóru þeir félagar Nemanja Sovic og Kelly Beidler fyrir liði ÍR. Þeir voru óstöðvandi og varnarmenn Hauka áttu í miklum erfiðleikum með að stoppa þá.
Í hálfleik var staðan 57-44 og vörn gestanna hriplek.
ÍR-ingar áttu mjög góðan þriðja leikhluta og keyrðu muninn upp jafnt og þétt. Haukar léku áfram svæðisvörn en hún dugði ekki til og sóknarleikur ÍR var áfram í hæstu gæðum. Að leikhlutanum loknum var staðan 80-57 og staða heimamanna vænleg.
Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka, var ekki á þeim buxunum að gefast upp eftir aðeins þrjá leikhluta og sendi menn sína framar í fjórða leikhluta. Fóru þeir að pressa allan völlinn. Hleypti það smá lífi í leikinn en munurinn var einfaldlega það mikill og leikur ÍR-inga það þéttur að þeir voru aldrei að fara missa þetta niður. Munurinn á liðunum var um og yfir 20 stig út leikhlutann en Haukar skoruðu síðustu sex stigin og minnkuðu muninn í 18 stig en lokatölur 104-86.
Hittni heimamanna var frábær í leiknum og þeir virtust á köflum setja niður öll skot. En þess má geta að vörn Hauka var hriplek og klárrir sóknarmenn ÍR-inga nýttu sér það og fundu auðveld og opin skot.
Stigahæstur hjá ÍR var Kelly Beidler með 34 stig og 13 fráköst en hann var frábær í leiknum. Hreint og beint óstöðvandi. Nemanja Sovic var með 23 stig en hann var einnig frábær. Sveinbjörn Claessen setti mikilvæga þrista en hann endaði með 12 stig og James Bartolotta skoraði 17 stig.
Hjá Haukum var Semaj Inge með 20 stig en þrátt fyrir það var þetta ekki hans dagur. Gerald Robinson skoraði 15 stig og þeir Örn Sigurðarson og Davíð Páll Hermannsson settu 11 stig hvor.
Mynd: Kelly Beidler var frábær í liði Breiðhyltinga í kvöld – [email protected]
Umfjöllun: [email protected]





