ÍR lagði Ármann í Laugardalshöllinni í kvöld í 7. umferð fyrstu deildar karla. Eftir leikinn er ÍR með sex sigra og eitt tap á meðan að Ármann er með einn sigur og sex töp það sem af er deildarkeppni.
Karfan spjallaði við Ísak Mána Wíum þjálfara ÍR eftir leik í Laugardalshöllinni.