spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór stigahæstur í sigri Acunsa á Alicante

Ægir Þór stigahæstur í sigri Acunsa á Alicante

Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu Alicante í kvöld í Leb oro deildinni á Spáni, 87-91.

Acunsa eru eftir leikinn í 10. sæti deildarinnar með 50% sigurhlutfall, 6 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 17 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 9. janúar gegn Juaristi.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -