spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór og félagar lutu í lægra haldi gegn Valladolid

Ægir Þór og félagar lutu í lægra haldi gegn Valladolid

Ægir Þór Steinarsson og félagar í HLA Alicante máttu þola tap í dag fyrir Valladolid í Leb Oro deildinni á Spáni, 68-52.

Eftir leikinn er Alicante í 7. sæti deildarinnar með sex sigra og fimm töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 19 mínútum spiluðum skilaði Ægir Þór fimm stigum, frákasti, stoðsendingu og stolnum bolta.

Næsti leikur Ægis og Alicante er þann 16. desember gegn Almansa.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -