spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór og Alicante töpuðu með minnsta mun mögulegum

Ægir Þór og Alicante töpuðu með minnsta mun mögulegum

Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante töpuðu með minnsta mun mögulegum fyrir Valldolid í Leb Oro deildinni á Spáni í dag, 70-71.

Á rúmum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 6 stigum, 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og einum töpuðum bolta.

Þrátt fyrir tapið eru Ægir Þór og félagar í ágætis stöðu í deildinni, í 6. sætinu með 17 sigra og 11 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -