Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante lögðu Caceres í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 65-72.
Eftir leikinn er Alicante í 3. sæti deildarinnar með tvo sigra og eitt tap það sem af er tímabili.
Á tæpum 22 mínútum spiluðum skilaði Ægir 6 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Alicante í deildinni er þann 21. október gegn Palencia.