spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór og Alicante þokast upp töfluna á Spáni

Ægir Þór og Alicante þokast upp töfluna á Spáni

Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante lögðu Juaristi í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 84-73.

Eftir leikinn eru Alicante í öðru sæti deildarinnar með fjóra sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 20 mínútum spiluðum skilaði Ægir Þór 10 stigum, 3 fráköstum og 5 stoðsendingum.

Næsti leikur Alicante er eftir landsleikjahlé, gegn Forca Leida þann 20. nóvember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -