spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór duglegur að mata liðsfélaga sína gegn toppliði Oviedo

Ægir Þór duglegur að mata liðsfélaga sína gegn toppliði Oviedo

Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC máttu þola tap í dag fyrir Oviedo í Leb Oro deildinni á Spáni, 89-76.

Það sem af er tímabili er Acunsa með 50% sigurhlutfall, 5 sigra og 5 töp, en þeir eru í 8.-9. sæti deildarinnar.

Á rúmum 36 mínútum spiluðum skilaði Ægir Þór 15 stigum, 3 fráköstum og 7 stoðsendingum.

Næsti leikur Acunsa er þann 12. desember gegn Forca Lleida.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -