spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór atkvæðamikill gegn toppliði Palencia

Ægir Þór atkvæðamikill gegn toppliði Palencia

Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante máttu þola tap í kvöld fyrir toppliði Palencia í Leb Oro deildinni á Spáni, 87-79.

Alicante eru eftir leikinn í 6. sæti deildarinnar með 13 sigra og 8 töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 11 stigum, 5 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum, en hann tapaði einnig 2 boltum í leiknum.

Næsti leikur Ægis og Alicante er eftir landsleikjahlé þann 5. mars gegn Burgos.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -