HomeFréttirÆgir Ice Bjarnason heillar með Athens

Ægir Ice Bjarnason heillar með Athens

 
Blikinn Ægir Bjarnason hefur heillað með Athens miðskólaliðinu í Bandaríkjunum en kappinn er stigahæsti leikmaður liðsins. Ytra kalla menn hann Ice og í fyrstu hafði þjálfari liðsins ekki mikla trú á Íslendingnum enda hafði hann séð marga skiptinema koma og fara sem þóttust vera góðir á parketinu en Ægir stóð undir nafni.
,,Það er gaman af þessu, ég held að það sé bara auðveldara fyrir alla að kalla mig Ice frekar en mínu rétta nafni,” sagði Ægir í samtali við BattleCreekEnquirer.com.
 
Ægir er með 19,5 stig að meðaltali í leik hjá Athens sem og 5,0 stoðsendingar og hefur liðið byggt upp sinn leik í kringum kappann.
 
Ægir segir ennfremur í viðtalinu, sem lesa má hér, að hann vonist til þess að heilla einhverja háskóla og halda áfram dvöl sinni í Bandaríkjunum.
Fréttir
- Auglýsing -