spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir atkvæðamikill í sigri Acunsa

Ægir atkvæðamikill í sigri Acunsa

Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu CB Prat í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 70-81.

Acunsa eru eftir leikinn í fjórða sæti deildarinnar með átta sigra og sex töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 24 mínútum spiluðum skilaði Ægir Þór 11 stigum, 2 fráköstum og 2 stoðsendingum.

Næsti leikur Acunsa er þann 23. janúar gegn TAU Castello, en Ægir lék fyrir þá tímabilið 2017-18.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -