Æfingarbúðir verða haldnar í Keflavík fyrir stelpur á aldrinum 8-17 ára þann 10.-11. janúar á næsta ári. Það er fyrir tilstuðlan kvennaráðs Keflavíkur að Jenny er á leiðinni í heimsókn að halda þetta námskeið. Jenny spilaði með Keflavíkurstúlkum tímabilið 1997-98 og það árið unnu Keflavík allt sem í boði var. Eftir feril hennar sem leikmaður gerðist hún þjálfari og farsæll ferill hennar í þjálfun leiddi hana alla leið í WNBA.
Jenny mun koma til með að vera yfirþjálfari búðanna og henni til aðstoðar verða fjöldi valinkunnra þjálfara og leikmanna úr körfuknattleikshreyfingunni.
Til að skrá sig í búðirnar er hægt að hafa samband í netföngin, [email protected] og [email protected]