HomeFréttirAð svara og ekki svara: Pólitíkusinn Rubio

Að svara og ekki svara: Pólitíkusinn Rubio

 
Spænski stjörnubakvörðurinn Ricky Rubio hefur átt erfitt uppdráttar með Barcelona þessa leiktíðina og er ekki að finna fjölina í skotunum sínum í fimm deildarleikjum á Spáni (15% í þriggja og 25% í teignum). Barcelona eru 4-1 í upphafi tímabils sem er svo sem ekki slæmt en Rubio er að koma út úr erfiðu sumri með spænska landsliðinu sem hafnaði í 6. sæti á HM.
Rubio er einhver skærasta stjarna Spánar og hafa heimamenn í mörg ár bundið miklar vonir við kappann sem lét vel fyrir sér finna upp öll spænsku yngri landsliðin.
 
Sjálfur segist Rubio vera hinn rólegasti yfir stöðu mála með skotin sín en gerist öllu loðnari í svörum þegar hann er inntur eftir því hversu mikið lengur hann ætli sér að vera á Spáni en Minnesota Timberwolves völdu hann í nýliðavalinu 2009.
 
,,Mér líður mjög vel með Barcelona og finn fyrir stuðningi bæði liðsfélaga minna og þjálfara. Á þeim tíma sem ég hef verið hjá félaginu hef ég lært mikið, einn af þeim hlutum sem ég hef lært er að leggja sig fram 100% alla daga og vera ávallt tilbúinn til að gera sitt besta í hverjum leik. Það er erfitt að leika jafnvel yfir allt tímabilið en Barcelona má ekki tapa og til að halda góðum dampi þarf maður að vera sterkur andlega,“ sagði Rubio í nánast Alþingisham!
 
Hver segir svo að það sé ekki pólitík í íþróttum?
Fréttir
- Auglýsing -