HomeBónus deildinBónus deild kvennaDagbjört Dögg ólétt – Missir líklega af öllu tímabilinu með Val

Dagbjört Dögg ólétt – Missir líklega af öllu tímabilinu með Val

Dagbjört Dögg Karlsdóttir, leikmaður Vals í Bónus-deild kvenna í körfubolta, á von á barni í lok mars 2027. Hún greindi frá gleðifregnunum á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem hún birti sónarmyndir.

Ljóst er að fjarvera hennar mun hafa áhrif á leikmannahóp Vals á komandi leiktíð. Í samtali við Körfuna sagðist Dagbjört eiga von á barninu í lok mars og verði hún því líklega frá allt tímabilið, nema hún verði sérstaklega hress eftir barnsburð og nái úrslitakeppninni, þó hún telji það harla ólíklegt. Hún er gengin rúmar 14 vikur og var það ákvörðun Jamils þjálfara í samráði við hana að hún myndi ekki hefja leik á tímabilinu.

Þótt Dagbjört muni ekki spila með liðinu í byrjun ætlar hún alls ekki að sitja heima, heldur mun hún mæta á allar æfingar, fundi og leiki og standa þétt við bakið á sínum konum í vetur.

Karfan óskar parinu innilega til hamingju með viðbótina við fjölskylduna.

Fréttir
- Auglýsing -