spot_img
HomeFréttirÁ höttunum eftir NBA stjörnum

Á höttunum eftir NBA stjörnum

09:45 

{mosimage}

Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að KR B(umban) sé á höttunum eftir þekktum NBA stjörnum til að taka þátt með liðinu í 8-liða úrslitum Lýsingarbikarsins í körfubolta.

 

Í fréttinni segir að KR B(umban) hafi í síðustu viku reynt að fá Dennis Rodman til liðs við sig en kauði ku taka 4 milljónir króna á hvern leik. Einnig mun KR B(umban) vera á höttunum eftir bakverðinum snjalla Tim Hardaway og „killer crossover“ hreyfingunni hans.

{mosimage}

 

Fréttablaðið í dag segir ennfremur að KR B(umban) sé að reyna að fá Charles Barkley til liðs við sig þegar liðið mætir Grindavík, núverandi bikarmeisturum.

 

Frétt úr Fréttablaðinu í dag – www.visir.is

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -