Laugardaginn 27. ágúst fór fram 3 á 3 Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa við Glerárskóla á Akureyri, en völlurinn var formlega vígður fyrr um daginn. Mótið var haldið í tengslum við Akureyrarvöku sem er árviss bæjarhátíð.
Mótið fór fram í blíðskaparveðri og þótti heppnast einstaklega vel. Átján lið voru skráð til leiks og var keppt í fjórum flokkum: 13 ára og yngri, 15 ára og yngri, öldunga (25 ára og eldri) og opnum flokki. Fullt af áhorfendum mættu á völlinn, MeisDarri þeytti skífum og hélt uppi dúndrandi körfuboltastemningu auk þess sem heitt var á grillinu. Þetta er lífið! Leikurinn verður pottþétt endurtekinn að ári og vonandi gott betur. Mótshaldarar þakka öllum leikmönnum, þeim sem lögðu leið sína á völlinn og sér í lagi sjálfboðaliðunum sem gera svona viðburði mögulega.
Leikirnir á mótinu voru 32 talsins, margir stórskemmtilegir og oft sáust skemmtileg tilþrif. Í fyrri hluta mótsins var spilað í flokki 13 ára og yngri og öldunga (25 ára og eldri) í seinni hlutanum öttu liðin í 15 ára og yngri og opnum flokki kappi. Hér að neðan má sjá hvaða lið báru sigur úr býtum í hverjum flokki og hverjir hlutu aukaverðlaun, sem öll höfðu skírskotun til Ágústar H. Guðmundssonar heitins: Gústinn – háttvísiverðlaun, Peysan – flottasta liðið, Boston – bestu tilþrif og Áttan – besti leikmaður. Páll Jóhannesson var svo að sjálfsögðu á vellinum og smellti myndum af leikjunum og liðunum.
Fyrri hluti (U-13 og öldungar)
13 ára og yngri
- Sigurlið: Dream Team
Öldungar (25 ára og eldri)
- Sigurlið: Skotfélagið
Gústinn – háttvísiverðlaun: Dream Team
Peysan – flottasta liðið: Curvyboltafjelagið
Boston – bestu tilþrif: Nökkvi Jón Stefánsson, Þristarnir
Áttan – besti leikmaður í U-13: Bergvin Ingi Magnússon, Dream Team
Áttan – besti leikmaður í öldungaflokki: Rúnar Þór Ragnarsson, Skotfélagið
Seinni hluti (U-15 og opinn flokkur)
15 ára og yngri
- Sigurlið: BGSN
Opinn flokkur
- Sigurlið: Búlgaríu kona
Gústinn – háttvísiverðlaun: Götugreindir
Peysan – flottasta liðið: Durgarnir
Boston – bestu tilþrif: Aron Geir Jónsson, 4 Harðir
Áttan – besti leikmaður í U-15: Birkir Orri Jónsson
Áttan – besti leikmaður í opnum flokki: Reynir Róbertsson, Búlgaríu kona
Myndasafn (Palli Jóh)






