spot_img
HomeFréttirScaniavinir

Scaniavinir

7:00

{mosimage}

Einar Jóhannsson, Stefán Arnarson og Þóra Melsted hafa myndað með sér vinnuhóp sem gengur undir nafninu Scaniavinir. Markmið hópsins er að auðvelda íslenskum liðum að komast á Scania Cup, fjölga íslenskum liðum á mótinu, koma því í fastar skorður hvaða liðum er boðið og hjálpa SBBK að viðhalda gæðum mótsins. Það er stefna SBBK að fá bestu lið Norðurlandanna á mótið og um leið vilja þeir hafa lið frá Norðurlöndum í sem flestum flokkum.

Erik Lindell framkvæmdastjóri mótsins og Scaniavinir hafa samið um að þau strákalið sem lenda í tveimur efstu sætunum og það stelpulið sem lendir í fyrsta sæti á Íslandsmótinu fái sjálfkrafa boð á mótið. Einnig er búið að skilgreina ákveðinn glugga fyrir önnur frambærileg lið. Scaniavinir eru jafnréttissinnar á íþróttasviðinu. Þrátt fyrir það meta þeir stöðuna þannig að íslensk kvennalið verðskuldi aðeins eitt lið í hverjum flokki.

Hér fyrir neðan sést hvaða lið hafa fengið boð vegna næsta móts. Þessi félög hafa frest til 20. september nk. til að staðfesta þátttöku, sem má gera með því að hafa samband við Scaniavini.

Þau félög sem þiggja boðið fá síðan formlegt boð frá mótstjóra Scania Cup. Scaniavinir sáu um boðunina og boðið var ýmist sent á forsvarsmenn félags og/eða þjálfara viðkomandi flokka. Þau lið sem telja sig ekki hafa fengið boð geta haft samband við Scaniavini.

1996  Strákar: Haukar og UMFG.  Stelpur: Keflavík.
1995  Strákar: Breiðablik og Stjarnan.  Stelpur: UMFG.
1994  Strákar: KR og Þór (Þorlákshöfn).  Stelpur: Keflavík.
1993  Strákar: Keflavík og Breiðablik.  Stelpur: Keflavík.
1992  Strákar: UMFN og Fjölnir.  Stelpur: Haukar.
1990-1991  Strákar: KR og Breiðablik.  Stelpur: Haukar.

 

 

Fréttatilkynning

Fréttir
- Auglýsing -