spot_img
HomeFréttirFyrstu umferð í Poweradebikarnum lýkur í kvöld

Fyrstu umferð í Poweradebikarnum lýkur í kvöld

09:58

{mosimage}

 

(Kemur annar bikartitill í safnið hjá ÍR?) 

 

Tveir leikir fara fram í Poweradebikarkeppni karla í kvöld þegar Bikarmeistarar ÍR taka á móti Fjölni og Hamar tekur á móti Tindastólsmönnum. Báðir leikirnir hefjast kl. 19:15.

 

Annað hvort ÍR eða Fjölnir mæta Njarðvík í 2. umferð á sunnudag í Ljónagryfjunni og Hamar eða Tindastóll leika gegn KR í DHL-Höllinni í Vesturbænum sama dag.

 

Nýjir Powerademeistarar verða krýndir í ár þar sem Keflvíkingar eru úr leik eftir tap gegn Þór Akureyri í Sláturhúsinu í gær.  

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -