12:39
{mosimage}
Pavel Ermolinskij sem leikur með spænska liðinu CB Huelva í LEB Gull deildinni var á dögunum lagður á sjúkrahús þar sem hann fór í bráðaaðgerð vegna samfallins lunga.
Pavel varð fyrir því óláni að fá högg á rifbeinin sem ollu þessu.
Talið er að hann verði frá í að minnsta kosti mánuð.
Mynd: www.karfan.is



